Búið er að setja inn myndbönd undir flipann *Nemendur* > myndbönd frá Vorgleði 2024 og eins kynningarefni nemenda frá samstarfsdegi skólanna frá 30.apríl sl.
Í dag fengum við góða gesti í heimsókn en það voru nemendur Grunnskóla Raufarhafnar sem kíktu til okkar ásamt starfsfólki.
Dagurinn var skipulagður sem uppbrotsdagur og talsvert var lagt upp með að hrista hópinn saman í leik og starfi.
Skóladagatöl leik- og grunnskóla næsta skólaárs 2024-2025 voru til umfjöllunar og samþykktar í skólaráði Öxarfjarðarskóla. Þau voru síðan tekin fyrir á fundi Fjölskylduráðs Norðurþings þann 16.apríl sl og samþykkt.